Hrútsfjallstindar eru ansi krefjandi ferð og segja margir að hún sé jafnvel erfiðari en en ganga á hæsta tind landins, Hvannadalshnjúk.
Lengd göngunnar er 23 kílómetrar og hækkunin rétt um 2.000 metrar. Það má reikna með því að hún taki 14-16 klukkutíma en það getur bæði stytst og lengst eftir aðstæðum á fjallinu.
Við munum reyna að velja okkur besta veðurglugga sem er í boði dagana 13-16 Maí en 13 maí er Uppstigningardagur.
Gangan hefst á bílastæðinu við Hafursfell/ Svínafellsjökul. Ágætt er að miða við að hefja gönguna milli 4:00 og 4:30 en þá má reikna með að við séum að koma til baka um klukkan 20:00. Við munum hliðra þessum tíma til ef veðuraðstæður krefjast þess.
Fyrst er gengið inn með Hafursfellinu yfir flatlendi sem er auðvelt yfirferðar og inn með Skaftafellsjökli. Eftir tæplega 2 kílómetra göngu hefst hækkunin upp Hafursfellið sem er nokkuð brött og eftir það er gangan upp í móti alla leið upp í Sveltiskarð en þar töpum við lítilsháttar hæð, áður en lagt er í nokkuð bratta göngu upp á jökulinn. Við förum síðan í línu í um það bil 1.200 metra hæð, og göngum í henni það sem eftir er leiðarinnar, norðan undir Vesturtindi og á Hátind.
Leiðin til baka er sú sama, nema hvað nú hallar undan fæti, sem gerir hana léttari en þó getur verið ansi þungt sporið í Sveltiskarðinu því snjórinn getur verið talsvert mjúkur og djúpur eftir sólbráð dagsins. Ennfremur reyna neðstu brekkurnar vel á aumar tær niður í móti og rétt að passa vel upp á að táneglur séu vel klipptar og skór vel reimaðir ef forðast á að að tapa nöglunum á þessum síðustu metrum ferðarinnar.
Skynsamlegt er að gera ráð fyrir að gista í Öræfunum frekar en að halda beint heim eftir göngu því að gangan tekur vel í og betra að vera ekki útkeyrður þegar ekið er heim á leið.
Varðandi gistingu þá er Hótel Skaftafell vel staðsett og örstutt að upphafsstað göngu. Að sjálfsögðu er hverjum og einum í sjálfsvald sett hvar hann gistir en hafa þarf í huga að gera ráð fyrir aksturstíma að Hafursfellinu þannig að ekki verði tafir á brottför.
Útbúnaður
Göngufatnaður
- Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
- Mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís
- Peysa úr ull eða flís
- Jakki, softshell
- Göngubuxur
Í bakpokanum
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Húfa/ buff, og vettlingar
- Legghlífar (valkvætt)
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Göngustafir
- Nesti fyrir daginn
- Göngunasl, þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi, hitabrúsi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
Öryggisbúnaður
Belti og læst karabína, broddar og ísöxi
Að auki er leiðsögumaður með sprungubjörgunarbúnað, leiðsögubúnað, fjarskiptabúnað og línu.



