
Við höfum ákveðið að sumarferð Fjallafólks verði að þessu sinni í Hítardal og stefnum að tveimur heilum göngudögum og einni styttri göngu ef veður leyfir
Hítardalur er einstaklega fallegt svæði ofan Mýra á vesturlandi. Í honum er Hítarvatn, sérlega fallegt fjallavatn sem umkringt er fjöllum á alla vegu og einnig einstaklega fjölbreyttum og sérstökum hraunmyndunum víða um dalinn.
Við vatnið er ágætur skáli sem rúmar auðveldlega um 20 manns og höfum við tryggt okkur hann frá fimmtudegi 4. Ágúst til sunnudags 7. ágúst. Í skálanum eru kojur með dýnum þannig að það þarf að taka með kodda og svefnpoka.
Dagskrá ferðarinnar:
Fimmtudagur 4. Ágúst: Mætt í skálann í Hítardal eftir kl. 17:00, komum okkur fyrir og tökum kvöldgöngu á Hólminn ef veður verður okkur hagstætt.
Föstudagur 5. Ágúst: Gengið frá skálanum, yfir stífluna við útfall Hítarvatns og þaðan upp Neðri Snjódal og upp á Snjódalshyrnu. Þaðan göngum við síðan á Geirhnjúk og áfram að norðurenda Hítarvatns. Þaðan munum við síðan ganga austur fyrir vatnið framhjá Foxufelli og til baka í skálann. Þetta er drjúg dagsganga, eitthvað rúmir 20 km með hækkun/ lækkun um 1.100 metra.
Laugardagur 6. Ágúst: Ekið inn jeppaslóð inn í Þórarinsdal að uppgöngustað á Smjörhnúk. Gengið á Smjörhnúk og eftir tindaröðinni inn á skarðið við Tröllakirkju. Stemmning og veður látið ráða hvort við bætum henni í áætlun dagsins, og eins hvort við göngum sunnan eða norðan Smjörhnúks til baka.
Vegalengd göngunnar um 12 km. og hækkun/ lækkun allt að 1.000 metrum.
Síðan stefnum við að því að hafa sameiginlegan kvöldmat og grilla eitthvað gott um kvöldið.
Sunnudagur 7. Ágúst: Göngum frá húsinu eftir okkur og tökum einhverja auðvelda göngu fyrripart dagsins áður en við höldum heim. Af mörgu er að taka í Hítardal, en til dæmis mætti skoða hina gríðarlegu skriðu sem féll í dalnum sumarið 2018 og stíflaði Hítarána og breytti farvegi hennar til muna.
Eins og venjulega munum við aðlaga dagskrána aðstæðum og færa/ breyta göngum ef veður eða annað krefjast þess.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Hítardalnum í Ágúst.
Útbúnaður, ekki tæmandi listi en svona til viðmiðunar
Göngufatnaður
- Góðir uppháir gönguskór úr leðri eða stífir jöklaskór
- Mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís
- Peysa úr ull eða flís
- Jakki, softshell
- Göngubuxur
Í bakpokanum
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Húfa/ buff, og vettlingar
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Göngustafir
- Nesti fyrir daginn
- Göngunasl, þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf