Austur Grænland Júlí 2022

Upplýsingar um ferðina:

Dagsetning: 15. til 20. júlí 2022
Verð: 286.000 kr með flugi ef staðfest er fyrir 20. desember. Eftir það kann verð á fluginu að breytast

Flug

FI103-15. júlí 10:45/10:25
FI104-20. júlí 11:10/14:50

Leiðsögumaður er Leifur Örn Svavarsson
leifur@slod.is

Innifalið í verði:

  • Flug til og frá Kulusuk á Grænlandi með Icelandair
  • Leiðsögn og upplýsingafundur fyrir ferð
  • Bátaskutl milli staða á Grænlandi og fluttningur á farangri
  • Gisting í skála í Kulusuk, kvöld- og morgunmatur í Kulusuk sem eldaður er sameiginlega
  • Gisting á gistiheimili í uppábúnum rúmum í Tasiilaq, kvöld- og morgunmatur

Ekki innifalið í verði:

  • Þátttakendur hafa með sér þurrmat og nesti fyrir ferðina, samkvæmt matarlista.
  • Heimsókn á lítið safn í Kulusuk ef það fæst opnað fyrir okkur. Safnið og minjagripir, sem oft er hægt að kaupa beint af íbúum, verður að greiða með peningum þannig að gott er að hafa með sér nokkur hundruð danskar krónur.

Dagskrá


Dagur 1 – föstudagur 15. júlí
09:00 Mæting á Reykjavíkurflugvöll. Athugið að við erum að fara í millilandaflug, þurfum því að mæta tímanlega og hafa með okkur vegabréf eða persónuskilríki.
Við komuna til Kulusuk verður farangurinn okkar fluttur á fjórhjóli með kerru að
gistiheimilinu en við förum gangandi í skoðunarferð um Kulusuk og nágrenni þar sem við fræðumst um menningu og sögu íbúa svæðisins. Gist í svefnpoka í skála.
Sameiginlegur kvöld- og morgunverður innifalinn.


Dagur 2 – laugardagur 16. júlí
Siglt frá Kulusuk til þorpsins Tiniteqilaaq, lítils veiðimannaþorps við Ísafjörðinn mikla,
Sermilik. Þetta er eitt fallegasta veiðimanna þorpið á Grænlandi, æðisleg staðsetning,
litskrúðug hús og samfélag veiðimanna.
Göngum frá þorpinu að tjaldstæðinu sem við notum næstu tvær nætur. Farangur er fluttur að tjaldsvæði, svo við göngum með dagspoka.
Gist í tjaldi og hver sér um sinn mat.


Dagur 3 – sunnudagur 17. júlí
Dagsganga um stórkostlega Grænlenska náttúru, granít fjöll, jökulsorfin hvalbök og klappir einkenna landslagið.
Gist í tjaldi og hver sér um sinn mat.


Dagur 4 – mánudagur 18. júlí
Hópurinn er sóttur að morgni og siglt eftir Sermilikfirðinum (Ísafirðinum) milli gríðarlegra borgarísjakana. Farið er inn í Johann Petersen fjörð og áð á klettarifi þar sem skriðjöklar meginjökuls Grænlands skríða í sjó fram. Farið verður í heimsókn í eyðiþorpið Iqarteq semstaðsett er á lítilli eyju í miðjum Sermilikfirðinum áður en farið er í land á hvítum sandfjörum Ammassalikeyju. Tjaldað verður á ströndinni og gengið um svæðið.
Gist í tjaldi og hver sér um sinn mat.


Dagur 5 – þriðjudagur 19. júlí
Við komum farangrinum í bát áður en við göngum yfir eyjuna til Tasiilaq, sem er höfuðstaður Austur Grænlands. Gangan er löng og tekur allan daginn eða um 9 til 10 tíma. Farangurinn fáum við svo aftur við komuna til Tasiilaq.
Gist á gistiheimili með uppábúnum rúmum, sameiginlegur kvöld- og morgunverður
innifalinn.


Dagur 6, miðvikudagur 20. júlí
Eftir morgunverð göngum við niður á höfn þaðan sem hópnum er skutlað aftur til Kulusuk.
Þegar þangað er komið göngum út á flugvöll, þaðan sem flogið er heim. Áætlað er að lenda á Reykjavíkurflugvelli kl 14:50


Matur og búnaður:

Koma þarf með tjald, dýnu og svefnpoka. Við sendum útbúnaðarlista fyrir ferð.
Mat fyrir gönguferðina kemur hver með fyrir sig en samkvæmt nákvæmum matarlista.
Farið er yfir útbúnað og mat á upplýsingafundi fyrir ferð.


Staðfestingargjald:

Staðfestingargjald fyrir ferðina er 25.000 kr. Verðið 286.000 kr með flugi gildir ef að staðfest er fyrir 20 desember. Eftir þann tíma þá kann verð á fluginu að breytast.
Staðfestingargjaldið fer í að staðfesta flugsæti og er óafturkræft nema að ferðin verði felld niður vegna utanaðkomandi aðstæðna.
Greiða þarf staðfestingargjaldið inn á reikning:

0370 – 26 – 490325 kt 490321 0470 (Slóðir, ferðaskrifstofa)